Jæja, eftir mikla pælingar og margar áskoranir hef ég ákveðið að
skella inn bloggi. Það er þó aðalega gert til að friða fólk sem
hefur brunnið í skinni eftir sjóðandi færslu um mitt spennandi
líf...
Það er nú ekki nema rúmlega mánuður síðan ég skrifaði eitthvað
hérna og það hefur svosem ekki mikið gerst á þeim tíma. Airwaves
kom og fór, það voru 3 skemmtilegir en erfiðir dagar, alltaf gaman
að taka spretti í svona vinnu sko

Nýja vinnan mín í Valsheimili
hefur verið lengt fram á vor þannig að ég þarf að minnka við mig á
öðrum stöðum en ég get bara ekki alveg ákveðið hvar það á að vera.
Verð samt að fara að koma mér að því, þetta gengur ekki alveg
svona...
Fyrsti leikur í körfunni búinn og við skitum á okkur. Ekkert
sérstakt sem ég vil segja um þennan leik en ég vil þakka þeim sem
lögðu leið sína á þennan leik, ég lofa sigri næst og vonandi líka
að ég verði aðeins betri.
Ég fór í sakleysi mínu inn í búð um daginn og þá sá ég að það
voru komnar upp jólavörur. Ég verð alltaf jafn pirraður á þessum
tímasetningum, það á ekkert að gera neitt jóla fyrr en í desember,
þangað til á þetta bara að vera bannað. Mér finnst alveg gaman af
jólunum en ekki fyrr en þau eru virkilega farin að nálgast. Að
setja þetta svona snemma í gang gerir það bara að verkum fyrir mig
að ég verð búinn að fá ógeð á jólaskrauti og jólalögum, þau eru nú
örugglega alveg að fara að nálgast líka. Hvað ætli það sé langt í
fyrsta jólalagið í útvarpinu?? Ég segi næsta vika, þá verðu einhver
apaköttur búinn að setja eitt slíkt í spilun. Talandi um útvarp, er
það einhver regla að maður þurfi að vera þroskaheftur til að fá að
vinna í útvarpi? Skil reyndar ekki af hverju það þurfa að vera
útvarpsþættir, er ekki nóg að láta bara lögin rúlla? Allt í lagi
með fréttir og slíkt en annað má bara fara í vaskinn fyrir mér, um
leið og fólk fer að tala skipti ég um stöð, það er bara þannig.
Símahrekkir?? Hvað er málið með það, ég gerði slíkt þegar ég var
kannski 10 ára en svo óx ég upp úr því(samt er ég nú ekkert svo
þroskaður). Það er fátt sem pirrar mig á morgnana en einmitt þetta,
einhver rödd í útvarpinu sem þykist vera svo hress en er svo bara
að bíða eftir að geta dottað á milli laga. Nei takk, ég vil lög í
mitt útvarp....
Annars vil ég ekki skrifa meira að sinni, ég er frekar
pirraður í dag þar sem ég er veikur og því búinn að hanga heima í
allan dag. Það er langt frá því að vera minn stíll og ég ætla rétt
að vona að ég þurfi ekki að upplifa slíkt í nokkuð langan tíma
aftur. Það er bara takmarkað hvað Friends geta gert fyrir mann í
svona stöðu en sem betur fer þá fékk ég lánaða eina seríu af þeim
þáttum fyrir stuttu og það gerði gott mót í dag.Vil ég þakka
viðkomandi kærlega fyrir en það var hún María Rós sem af góðmennsku
sinni gerði þetta. Annað mál, ég er núna búinn að vera safna DVD
myndum í nokkur ár og á alveg pínu safn. En það hefur komið fyrir í
gegnum tíðina að ég hafi lánað einhverjar myndir og nú er svo komið
að mig vantar líklega um 15-20 myndir í safnið og ég bara get ekki
munað hverjum ég lánaði þessar myndir, allavega ekki allar. Það
væri því fínt ef einhver sem les þetta og er með mynd frá mér myndi
skila þeim(Egill). Ég vil ekki þurfa koma og brjóta einhverja hausa
til að fá þær til baka, kapish??
Vá, ég gleymdi að ég ætlaði ekki að skrifa meira, ekki alveg
eins og maður ætlaði. En núna er ég hættur, vonandi líður minna en
mánuður þangað til að ég nenni að skrifa meira hérna...